Færsluflokkur: Bloggar
11.10.2024 | 01:17
Gervigreind
Í pappírsútgáfu Morgunblaðsins er fjallað um gervigreind þann 10. október, í gær. Sú grein heitir:"Ótti við gervigreindarbólu sem gæti sprungið." Höfundur er Guðmundur Sv. Hermannsson.
Ein setning stendur uppúr, að minnsta kosti um að talið er að tölvur verði ekki eins gáfaðar og mannfólk fyrr en í fyrsta lagið 2030, eftir ekki nema svo sem 6 stykki af árum, takk fyrir!
Í greininni sem vitnað er í er fjallað um hugsanlega oftrú tæknirisa á gervigreindinni og hversu mikið hefur verið fjárfest í henni, og að kannski sé þetta bóla sem muni springa.
Geoffrey Hinton, verðlaunaður frumkvöðull á þessu sviði telur það ekki ómögulegt að gervigreindin muni útrýma mannkyninu, aðspurður um það, eins og spennumyndir hafa fjallað um lengi.
Nú þarf fólk að staldra við.
Er ekki nóg af atriðum sem ógna þessu blessaða/bölvaða mannkyni okkar?
Segjum sem svo að tölvur nái mannlegri greind árið 2030. Mun þróun gervigreindar stöðvast þar? Nei, ábyggilega ekki.
Gervigreind mun þá taka fram úr mönnum eftir 2030 samkvæmt þessu.
Ef þetta gengur eftir er búið að auka flækjustigið í heiminum til muna.
Vélmenni sem eru gáfaðri en menn ráða ekki yfir okkur strax, en hvað með síðar?
Leti fólks er alveg fáránleg.
Hún er auk þess ein af dauðasyndunum 7 í kristninni.
Það er full ástæða til að berjast gegn gervigreind og þróun hennar, eins og sumir frumkvöðlar hennar eru farnir að gera. Það sama gerðu margir af þeim sem bjuggu til kjarnorkuna, börðust gegn henni eða vöruðu við henni það sem eftir var ævinnar hjá þeim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.10.2024 | 00:47
Ikea-geitin, Taranos og kvista-líkneskið
Stína á Stöð 2 sagði frá Ikea-geitinni í gær og fór með vísu eftir sig sem var bara býsna góð, þótt ofstuðluð væri á köflum, en skemmtileg var hún og gerð af nokkrum hagleik hjá stúlkunni þrátt fyrir allt.
En allt er þetta hið merkilegasta mál og snertir við mér sem heiðnum manni ekki síður en kristnum.
Eitt sinn kynnti ég mér drúízku býsna vel og mér finnst gaman að fjalla um hana, sem eina merkilegustu heiðnu trú sem ég veit um.
Eins og menn vita er það hefð að kveikja í Ikea-geitinni árlega sumsstaðar, og því ekki um skemmdarverk tóm að ræða.
Ég er mjög hrifinn af heiðnum siðvenjum og öllum trúarlegum siðvenjum raunar, þetta nær eins langt aftur og hægt er að ná í menningunni.
Þetta má rekja aftur til Taranosardýrkunarinnar evrópsku, sem er ævaforn. Fyrir þau sem ekki vita þá var og er Taranos heiðinn guð evrópskur, sem var tignaður fyrir Krists burð. Án þess að okkar norræni Þór sé sami guðinn þá eiga þeir margt sameiginlegt, og meðal annars nafnið, sem er eiginlega það sama, ef undan eru skildar málsögulegar breytingar á orðum á 3000 árum eða svo. Taranos merkir þrumuguðinn, eða sá sem gefur frá sér rosalega ískrandi hljóð og hvellt. Er þar vísað í geimskipin sem guðirnir komu í án efa.
Tar-stofninn merkir þruma eða drynjandi hljóð, eða hvellt og skært hljóð.
Terhr getur einnig verið í stofni þessa guðaheitis, en það orð þýðir að fara gegnum, fara yfir. Taranos er því guðinn sem með eldingunni fer yfir himininn. Þetta var líka sú mynd sem norrænir menn höfðu oft af guðinum Þór.
Það hafði ég lært í bókum heiðnum að fólki hafi verið fórnað fyrir þrumuguðinn Taranos með því að brenna það, eða dýr eða plöntur.
Kemur þar fyrir á ensku hugtakið "wicker-man", sem myndi útleggjast "tága-maður", eða "kvista-líkneski".
Fyrir kristið fólk á okkar tímum er þetta mikil grimmd, að fórna fólki á þennan hátt og yfirleitt að slíkt skuli hafa viðgengizt áður fyrr.
Þó má maður ekki dæma þetta fólk eða þess siði eftir okkar mælikvarða, því það gengur bara alls ekki upp.
Í "kvista-líkneskjunum" var algengt að glæpamönnum væri fórnað, samkvæmt heimildum, en stundum saklausu fólki.
Líkneskið var gert úr tágum og kvistum, jafnvel trjágreinum sterklegum, þar sem það þurfti. Inní líkneskið var fólk sett tugum saman. Heimildum ber ekki saman hvort fórnarlömbin voru brennd lifandi eða hvort þau voru aflífuð fyrst.
En til að skilja þetta sem er okkur svona fjarlægt þurfum við að skilja trúarbrögð Kelta og Gaulverja.
Taranos var einn þriggja meginguða þeirra. Hann samsvaraði Zeus hinum gríska og Júpíter hinum rómverska, en Brahma hinum indverska og hindúíska.
Brahma skapar en Shiva eyðir.
Esus eyðir heiminum en Taranos skapar hann.
Alla vega, mikil helgi hvíldi á Taranosi meðal Kelta.
Talið er að upphaflega hafi það verið talinn heiður að deyja fyrir guði og gyðjur. Þá var jafnvel stjórnmálafólki fórnað eða stríðsmönnum, dýrmætu fólki í samfélaginu, til að tryggja góða úrkomu, uppskeru og frjósemi fólks og dýra.
Síðan varð hnignun á hundruðum og þúsundum ára. Fólk fór að láta sér nægja að fórna glæpamönnum.
Kristilegur trúarhiti og heiðinn trúarhiti eru ekki óskyld atriði, heldur náskyld.
Júpíter merkir Dags-faðir. Djous varð að Jove og Jove að Jupi og ter bættist við sem merkir faðir, stytting úr pater.
Ikea-geitin og siðvenjan að brenna hana er án efa komin úr þessum heiðnu trúarbrögðum og ævafornu.
Það er erfitt að láta fólk skilja hvað hér bjó og býr að baki.
Fyrir það fyrsta var offjölgun meðal Kelta til forna. Engar getnaðarvarnir voru notaðar og kynhvöt allra var í hámarki, ekkert plast til að valda skaða eða önnur mengandi efni. Því voru konur óléttar stöðugt allt sitt líf. Margir dóu í hernaði, sumir úr smitsjúkdómum, eða á annan hátt.
En hugmyndir manna um Valhöll áttu sér eldri rætur.
Ásatrúin kennir að vopndauðir menn fari til Valhallar til fundar við Óðin og guðina almennt, en sóttdauðir og ellidauðir fari til Heljar og eigi þar ekki eins ánægjulega vist.
Gaulverjar og Keltar trúðu því að sál manna færi eftir dauðann yfir á annan hnött. Þetta er ekki vel þekkt, en til eru bækur og heimildir sem herma frá þessu eða einhverju mjög svipuðu sem ég hef lesið. Þessi kenning er talin koma frá Pýþagorasi, sem kenndi það sama, og það kenndi dr. Helgi Pjeturss einnig, og fjallaði um Pýþagoras og að hann hafi fyrstur kennt þetta, nema hjá honum er þetta óljósara en hjá Keltum, drúíðum, og dr. Helga Pjeturss. Giordano Bruno kom með svipaðar kenningar, og hann var brenndur á báli af kirkjunni fyrir villutrú árið 1600, eins og frægt er orðið.
Engir af þessum fyrirrennurum dr. Helga Pjeturss lögðu eins mikla áherzlu á þetta og hann sjálfur, Íslendingurinn í þessum hópi og mesti vísindamaðurinn, sennilega, sem á skilið miklu meiri frægð.
Þegar ég komst að því að Keltar voru nýalskir að nokkru leyti komst ég á þá skoðun að þeirra trúarbrögð hefðu verið merkilegri en þau rómversku og grísku, eða kristni og islam.
Til að skilja Kelta til forna þurfum við að athuga fáein atriði.
Keltar trúðu ekki á einn guð heldur marga guði.
Fyrir þeim voru trúarbrögðin vísindi, þekking. Önnur þekking var ekki til í þeirra samfélagi. Drúíðarnir, goðar og prestar hjá þeim, kenndu þeim og höfðu heimsmynd sem þeir kenndu um.
Enn fremur og kannski það sem skiptir mestu máli, Keltar ÞEKKTU EKKI SYNDINA EÐA SYNDARHUGTAKIÐ!
Fyrir þeim var það ekki rangt að brjóta boðorðin 10, þeir þekktu þau ekki. Kannski þekktu þeir eitthvað í sínum trúarbrögðum sem var líkt einhverjum af þessum boðorðum, en refsingar fyrir ódæði, það var eitthvað sem ekki var ljóst fyrir þá.
Keltar voru hundheiðnir aldirnar fyrir Krists burð, það er víst alveg óhætt að segja það.
Að sameinast guðinum Taranosi var því upphaflega mikill heiður og trúarleg athöfn fyrir Kelta. Það var jafnvel enn meiri heiður en að vera drepinn fyrir aðra guði eða gyðjur, því Taranos var samsvarandi Brahma, hann var sköpunarguðinn.
Þetta er þó flóknara en svo, því Keltar áttu fleiri sköpunarguði. Saga þeirra tekur yfir mjög langt tímaskeið, og mismunandi guðir og gyðjur voru tignuð á mismunandi stöðum og tímum.
Ekki er því ljóst hvenær Taranos kom fyrst fram og hvenær trúin á hann náði hámarki. Það er jafnvel mögulegt að hann hafi orðið meira áberandi vegna sambúðarinnar við Grikki og Rómverja, sem tignuðu Júpíter og Zeus.
En það má alveg fullyrða að þessar fórnir voru allt annað en einhver léttúð af hálfu þeirra sem aðhylltust þessi trúarbrögð.
Þetta sem hér kemur fram er ekki hægt að kalla óstaðfestan skáldskap þótt fólki finnist þetta kannski ótrúlegt. Ef menn skoða netið má sjá nægar heimildir fyrir þessu, þótt sumt af þessu sem ég skrifa um sé ekki nákvæmlega eins skrifað um þar, enda hef ég mitt heimildafólk á öðrum hnöttum.
Enn fremur er hægt að tengja þetta við jólin. Talið er að til forna hafi sá siður víða verið algengur að brenna greinar eða tré, og það hafi verið tengt við heiðið jólahald, allavega sumsstaðar og á einhverjum tímaskeiðum.
Menn höfðu ekki rafmagnsljós áður fyrr. Ekki var búið að finna upp rafmagnið, glóðarperur eða LED-ljós.
Geimverurnar sem komu á geimskipunum sem voru lýsandi. Þegar guðir og gyðjur voru farin heim til sín voru aðeins minningarnar eftir, sögurnar og einhverjir hlutir sem guðir og gyðjur skildu eftir.
Þar af leiðandi, þeir guðir sem voru tengdir við þrumur, eldingar, sólina eða eld af einhverju tagi, þeir voru taldir mikilvægir guðir, eða mikilvægar gyðjur.
Þetta er sagan um Ikea-geitina, eða fyrirmyndir hennar. Meira væri hægt að segja um þetta, en þetta nægir.
Hefðir eru sterkar. Kannski er það kynslóðaminnið. Ævaforn hegðun kemur aftur, og ævafornar hugmyndir sem lifðu með fornum kynslóðum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.10.2024 | 16:45
Kyrrstaða á RÚV og í ríkisstjórninni, valdagræðgi, stöðnun
Stór hluti þjóðarinnar er sammála því að breyta þurfi RÚV, og margir vilja annan útvarpsstjóra en Stefán. Það er nú eitt.
Hitt er annað mál að ég tel að miklu róttækari breytingar þurfi á rekstri RÚV en að fá annan en Stefán til að gegna þar stöðu útvarpsstjóra.
Rakel Þorgbergsdóttir og fleiri hafa flúið RÚV undanfarin ár og sumir gera því skóna að Byrlunarmálið sé ástæðan. Það kann vel að vera.
En Stefán Eiríksson mun hafa verið lögreglustjóri áður. Vinstrimenn ganga með þá samsæriskenningu í maganum eða kollinum að Sjálfstæðisflokkurinn stjórni dómskerfinu, lögreglunni, dómurum, og svo framvegis. Það gæti hafa verið rétt fyrir nokkrum áratugum, en það stenzt tæplega í nútímanum.
Ef Stefán er hægrimaður, þá er hann í hópi Gísla Marteins og fleiri, sem eru vinstrimenn í hægriklæðum.
Skyldi það ekki vera ástæðan fyrir 12% fylgi Sjálfstæðisflokksins, að þar fylgir ekkert innihald lengur, bara umbúðir?
Femínistar og vinstrimenn hafa nefnilega haft andlega valdið á Íslandi og á Vesturlöndum býsna lengi. Kirkjan er eins og tuska, og frjálshyggjumenn líka. Eva Hauksdóttir skrifaði vel um þetta fyrir nokkrum árum.
Satanismi Kvennakirkjunnar er hin nýja trú, og satanismi jafnaðarstefnunnar, sem boðar trúna á EGÓ, hver maður er sinn eigin guð, og hver kona.
Útvarp og sjónvarp allra landsmanna þarf að vera þannig að sjónarmið grasrótarinnar komi þar fram líka, ekki bara sjónarmið sem elta erlendar sjónvarpsstöðvar undir Sorosar stjórn.
Ég hef nokkra trú á Lilju Alfreðsdóttur. Hún er klárari en margir finnst mér. Sennilega þorir hún ekki að bylta RÚV frá A-Ö, eins og gera þarf.
Slíkir góðir hlutir gerast hægt. Fyrst þarf að koma fram hugmyndin og svo framkvæmdin. Oft þarf fleiri en eina ríkisstjórn til.
Stefán Eiríksson er svo æpandi merki um stöðnun innan RÚV að það er ömurlegt.
En það þarf miklu meira en að losna við einn svona útvarpsstjóra.
Það þarf reglur um óháða nefnd eða eitthvað slíkt sem kemur að rekstri og starfsmannahaldi á RÚV.
Slík nefnd þarf að vera þannig að alltaf sé skipt reglulega um fólk á RÚV, þannig að raddir úr öllum kimum samfélagsins heyrist.
Það er andstaðan við ríkjandi kerfi, Stefán Eiríksson og fleiri.
![]() |
Stefáni útvarpsstjóra snýst hugur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2024 | 00:02
For the happiness just bow, ljóð frá 11. nóvember 2018.
Winter cold, I'm waiting still,
will she be the right for me?
Sitting on the sill,
seeing not the beauty there.
So you think there's something here?
Same I followed, leading,
heart is bitter, beating,
best to risk it, shatter dreams,
not just nice as seems,
never will they perfect be!
Listen to me, less you speak,
lighter feeling, understand.
Slim and almost sleek,
slipping by in other's dress.
Body right, the mind's a mess,
mistakes, unlearn baby,
first you must say maybe,
more than ego, two in love,
diving, pretty dove!
daughters used to take that hand!
Wanna tame you, want your love,
we are almost perfect now.
Heaven high above
how you lust the mabe!
Feel your love just for me babe,
first you stop your messing,
around, all the dressing,
only live for mate, this here!
Find no more the fear!
For the happiness, just bow!
Mabe: Perla sem vex inní skel lindýra, ekki sporöskjulaga heldur hálf, vex inní skeljum, ekki skrokkum lindýra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2024 | 00:09
Alls staðar er eymdin
Annar hljómdiskurinn minn, "Hið mikla samband", frá 1999, var allur með lögum og textum eftir mig. Lag númer 2 heitir "Alls staðar er eymdin." Þessi boðskapur ætti alltaf að vera fólki nærtækur þegar fréttir eru sagðar. Hann gefur okkur nefnilega aðra sýn á málin, þá sýn, að við verðum sjálf að ráða hverjum er hægt að hjálpa, því ekki er hægt að hjálpa öllum í einu, það er bara staðreynd.
Þegar RÚV segir fréttir af fólki sem þjáist þá fylgir oft þeim fréttum ómeðvituð skylda sem hljómar svona: "Áhorfendur góðið, þið ættuð að hafa samúð með þessu fólki. Þarna er eymdin meiri en annarsstaðar."
Eins og fram kemur í þessari frétt þá er viðbúnaðarstigið hátt í Noregi vegna átaka á milli múslima og gyðinga þar í landi.
Það málefni er jarðsprengjusvæði, og erfitt að sjá hvernig hægt er að leysa deiluna fyrir botni Miðjarðarhafs, sem sjaldan hefur verið eins stigmögnuð og núna.
En þessi frétt sannar enn einu sinni það sem Jón Magnússon lögmaður og bloggari og fleiri hafa fjallað um, að það fylgir því áhætta að leyfa fólki að setjast hér að, sérstaklega þegar það kemur úr þjóðfélögum og löndum þar sem stríð eða átök geisa.
Ein lína í þessum söngtexta mínum er svona:"Mennirnir velja það ranga."
Já, hvort sem það er hægt að sanna það eða ekki þá hafa margir tilfinningu fyrir þessu. Hvort sem það er í kosningum eða daglega lífinu, þá er þetta svona. Á svo mörgum sviðum getum við sagt að ekki sé verið að velja rétt.
Þá vakna spurningar, hverjir hafa áhrif á okkur? Tökum við afstöðu sem byggist á víðtækri þekkingu, eða tökum við afstöðu sem byggist á litlum úrtakshópi og bergmálshelli?
Í þessum söngtexta mínum sem er á blúsformi, þá gætti ég þess að taka ekki afstöðu til deilumála með beinum hætti, heldur var ég með almennar setningar rétt eins og Bob Dylan gerði í sínu frægasta lagi, sem heitir:"Blowing In The Wind."
Það er bara misjafnt hvort lög fjalla um eitthvað sérstakt málefni eða hlutina í heild.
En það sem mér finnst þreytandi og rangt, það er þegar fólk þarf alltaf að vera að bítast og rífast um það hver sé betri en annar. Einnig finnst mér það óþolandi að maður sé kallaður siðlaus ef maður tekur ekki einhverja afstöðu sem ákveðinn hópur vill að maður taki.
Í Biblíunni sagði Jesús Kristur:"Enginn er góður nema guð". Þetta finnst mér mjög merkileg og rétt setning, eins og svo margt sem eftir honum er haft.
Það er bara mjög hættulegt ef þjóðir geta ekki ráðið því sjálfar hversu mikið kemur inn af fólki frá öðrum löndum og svo hvaðan það fólk kemur.
Auðvitað hafa Norðmenn gert eitthvað rangt fyrst svona er komið fyrir þeim. Auðvitað hafa Norðmenn verið alltof linir, alveg eins og Svíar!
![]() |
Hryðjuverkaógn í Noregi á næstefsta stig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2024 | 01:29
Silfrið á RÚV er 100% wók.
Steingrímur J. Sigfússon var í síðasta Silfri. Það var sláandi hvað hann er líkur einni frægustu grínfígúrunni sem Jón Gnarr hefur leikið, sem heitir Georg Bjarnfreðarson, mjög neikvæður og skapvondur kommúnisti. Jón Gnarr hefur sagt að hann elski að leika leiðinlega og skapvonda kalla. Hvort Steingrímur var fyrirmyndin að Georg Bjarnfreðarsyni veit ég ekki, en einn kunningi minn taldi Ragnar Reykás vera útgáfu af Steingrími.
Í Silfrinu komast varla hægriskoðanir að. Allir leiðinlegustu kommarnir eru þar fastir gestir, og allir sem úthúða hægrinu.
Eða þá að hægrifólk er fengið sem hefur minni en engan sjarma og er ekkert sérlega sannfærandi eða gott að koma fyrir sig orði. Það er notað til að vera dæmi um það hvað hægrimenn geta verið ósjarmerandi sumir, af öllum kynjum.
Silfrið er eins og annað RÚV efni, sérhannað til að heilaþvo fólk og sannfæra um wók, fjölmenningu og allt það.
Málsvari Sjálfstæðisflokksins var ekki sjarmerandi.
Áslaug Arna minnti á gamla kerlingu, skapvonda og pirraða, þótt hún sé í árum talin ung kona. Hún var með sama nöldurtóninn og Steingrímur J. Sigfússon, en sá nöldurtónn er víst orðinn fastur í henni og hún getur ekkert að því gert lengur.
Þau minntu á gömul hjón sem verja syndug börn sín, ríkisstjórnina.
Ugla minnti á fallega skvísu, sem hún er. Hún var ímynd æsku landsins og framtíðarinnar. Ég veit að þar er transkona á ferðinni, en það er líka tákn um eitthvað nýtt og ferskt.
Ólafur Ragnar var sjálfum sér líkur, að afsaka sig, en óvenju óöruggur með sjálfan sig að þessu sinni, því miður.
Einar var sami snyrtipinninn og áður, lagði lítið til málanna, en með sitt sama Ken útlit, og eftirmynd af Degi B. Eggertssyni.
Þetta var eins metnaðarlaust Silfur og það gat verið. Allir sem þarna komu fram fylltu útí staðalímyndir. Tvö eldri hjón að verja afkvæmin sín, vonlausu ríkisstjórnina, dóttir þeirra og ungur maður sem er ráðvilltur að feta sig og fóta í tilverunni, og svo afinn ráðsetti, forsetinn fyrrverandi.
Ég nota w í wók því ég elska að nota alla stafi sem eru til, og w í þeim tökuorðum sem hafa það í ensku. Stundum leik ég mér að því að skrifa wilja á íslenzku, því það er will á ensku. Ég reyni að finna nýjar eða eldri reglur til að nota q, w og c. Veit hvernig á að nota zetuna.
![]() |
Jón Gnarr gegnir engu embætti fyrir Viðreisn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2024 | 15:39
Vonlaus ráðherra, Þórdís Kolbrún - kvenvæðing Sjálfstæðisflokksins er að eyðileggja flokkinn
Er ekki Þórdís Kolbrún jafn vonlaus ráðherra og Katrín var eða Svandís í VG? Það heyrast nú þær raddir að hún sé versti utanríkisráðherra Íslands í allri okkar sögu. Þarf ekki Sjálfstæðisflokkurinn að losa sig við slíkar fraukur?
Það ömurlegasta við Sjálfstæðisflokkinn er að þar ræður meiru af hversu ríkri ætt maður er en ekki hvaða mann eða kvenkosti maður hefur.
Sú stefna hefur gengið sér til húðar, nú þegar Sjálfstæðisflokkurinn er kominn niður í 12% fylgi. Eitt sinn fylgdi þeirri stefnu krafa um að hafa hægriskoðanir, en Þórdís Kolbrún lætur meira bera á femínískum skoðunum, sem lita alla hennar utanríkismálapólitík, þótt ég greini einnig hjá henni hefðbundnar hægriskoðanir.
En þessar femínísku skoðanir hennar eru komnar frá vinstrinu, og þar eiga þær heima en ekki í hægrinu.
Ég held að Þórdís Kolbrún sé með óvinsælustu ráðherrum Sjálfstæðisflokksins. Stór hluti þjóðarinnar telur hana hafa gert óleik með að sýna Rússum óvirðingu, þrátt fyrir að þeir séu umdeildir.
Enginn gengur erinda nema sinna eigin, en ef Þórdís rekur erindi vinstrimanna, þá þurfum við ekki vinstriflokka, þá er hann í Sjálfstæðisflokknum, þessi vinstriflokkur sem allir vilja.
Ég hef ekki sett mig inní þessa Bókun 35. En manni er sagt að það sé sjálfstæðismál að hún sé ekki samþykkt. Veit að afi minn Jón hefði verið á móti þessu. Jú, ég hef lesið svo mikið um þetta að hér er enn verið að auka við ESB regluverk og EES regluverk.
Sumir segja að hér sé verið að fullgilda EES samninginn.
Það er orðið löngu tímabært að segja upp EES samningnum og Schengen-samningnum. Við eigum að styrkja ríki eins Bretland sem vilja vera fyrir utan, og gera sjálfstæða samninga.
Það er nefnilega búið að koma í ljós að þar sem eru samsteypur og alþjóðasamvinna, þar er spilling og viðbjóður.
Samfélag frjálsra þjóða, lítilla og stærri, að er gegnsærra, og ætti að vera framtíðin. Líka sjálfstæðir gjaldmiðlar og slíkt, eins og var.
![]() |
Fleiri á móti bókun 35 en með |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.10.2024 | 01:55
Only For The Better Day, ljóð (söngtexti á ensku) frá 9. nóvember 2021.
Happiness is here at last,
how I like you, now free!
Thank you, beauty, baby,
born to love me now, see.
May I be yours? Maybe?
Must you go today?
Wait, the perfect way!
Chorus:
Only this one, always be,
only for the better day.
Like her chubby, charming, free,
chase her, good to feel that way.
Perfect lady, pride and joy,
pick not one who's cheesy.
Tits will take you further,
trembling no more, easy.
Waiting for her, Werther,
warm and right for me.
Better it can't be!
So there's maybe something here?
Such an easy pig, see.
Think you're beauty, blondie,
baby would you dig me?
Wait so meet you, Wandie,
warm and perfect skin.
So we settle in...
Werhter er þýzkt nafn og þýðir sá sem er verðugur stríðsmaður.
Cheesy: Ómerkingur, minniháttar, óáhugaverður.
Wandie er skozkt kvenmannsnafn og þýðir:Guð er náðugur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er undarlegur áhuginn í fjölmiðlum á VG og þeirra landsfundi. Kannski skiljanleg óskhyggja hjá hægrisinnuðum blaðamönnum á Morgunblaðinu, að með því að veita þessum örflokki athygli stækki hann og stjórnin springi ekki. Er það sama óskhyggja á RÚV og víðar, óttinn við breytingar?
Hvers vegna reyna hvorki Vinstri grænir né blaðamenn að spyrja sig hversvegna fylgi þeirra er hrunið eins og Sjálfstæðisflokksins?
Fylgi Sjálfstæðisflokksins er komið niður í 12% samkvæmt nýrri könnun. Þær eru raunar margar og menn efast um trúverðugleika þeirra, en eitthvað er að marka slíkt samt.
Sumir myndu kalla örvæntinguna í VG núna dauðateygjur, eða óttann við að þurrkast út. Já, þau tala eins og þau vilji leita aftur í gömlu gildin, en er það bara í orði en ekki á borði? Maður heyrði ekki gamla slagorðið, "Ísland úr Nató og herinn á brott."
Kolbeinn Óttarsson Proppé, fyrrverandi þingmaður VG var skólabróðir minn úr MK, og auk þess fannst mér VG sá flokkur sem helzt væri verðugur að kjósa hann þarna á tímabili, 2003 um það bil. Það var áður en Frjálslyndi flokkurinn fékk meiri athygli frá mér, rétt fyrir hrunið 2008.
Um 2003 upplifði ég kommúnískt skeið í lífi mínu á ný, eftir að hafa losnað við það með aðstoð Sverris Stormsker 1987 og dr. Helga og annarra.
Þá samdi ég lagið "Konur þurfa miklu hærri laun", og "Jafnréttið er framtíðin", og fleiri slík.
Þá kynntist ég Þorvaldi Þorvaldssyni, Birgittu Jónsdóttur, Stefáni Pálssyni og fleirum, er ég spilaði "Blowing In The Wind" fyrir framan Stjórnarráðið í mótmælaskyni árið 2003, vegna Íraksstríðsins. Já, ég er enginn dæmigerður stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins, ég gef mér frelsi til að kjósa það sem ég vil hverju sinni, og að vera sammála eða ósammála stefnumálum flokkanna þvert á allar hefðir og venjulega flokkspólitík eða flokksaga.
Við Stefán Pálsson höfum báðir áhuga á myndasögum, og Þorvaldur kom mér fyrir sjónir sem einstaklega heiðarlegur og traustsverður kommúnisti, og það kann ég að meta í fari manna, þótt ég sé ekki 100% sammála þeim. Ég átti ágætt spjall við Birgittu í símtali því ég sagði henni að mamma hennar hefði hvatt mig áfram á Vísnavinakvöldi eitt sinn árið 1987, og kunnað vel að meta lögin mín sem ég spilaði þar, "Snjórinn", "Hér er..." og nokkur fleiri.
Já, Bergþóra Árnadóttir ræddi örlítið við mig og sagði mig efnilegan tónlistarmann, og notaði þessi fleygu orð, sem ég notaði í pistli mínum um Sverri Stormsker, hún sagði við mig að skilnaði eftir stutt spjall":Haltu áfram á sömu braut!"
Það hef ég vissulega gert og þakka henni hlý orð. Ég átti plötur með Bergþóru, og því var þessi hvatning hennar mér enn meira virði á þessum tíma, þegar ég var 17 ára.
En þannig er með mig, að sumt situr alltaf í mér og fer ekki úr mér frá kommúnistaárunum mínum, sem unglingur, eins og andúðin á NATÓ og óþörfum og heimskulegum stríðum, náttúruverndin og stundum femínismi, en þar hef ég mikið sveiflazt um dagana.
Mark Rotta, nýr framkvæmdastjóri NATÓ hefur engar áhyggjur af Trump. Sagt er að hann hafi verið valinn sem framkvæmdastjóri þarna því hann hati Rússa sérlega mikið.
En mikið má gleðjast yfir því að nýr framkvæmdastjóri Nató ber heiti sem minnir á hatað nagdýr og hættulegt, en minnir ekki á stolt, sem er andstæða alls þess sem Nató stendur fyrir, eða sjálfstæði þjóða.
Um Bandaríkin og Nató má segja þetta: Gríðarlegar vopnasendingar til Ísraels og Úkraínu hafa verið ástæðan fyrir fjölmörgum dauðsföllum og ekki er hægt að afneita því. Okkar þjóð er samsek, og stjórnvöldin okkar þó alveg sérstaklega.
Það sem verndar mannslífin í stríði er skjótur sigur, það sem veldur mestu mannfalli er oft að stríðin dragast á langinn.
Já, það vill svo til að fyrri plata Heimavarnarliðsins var mikið spiluð á mínu heimili á Álfhólsveginum, hjá mömmu og stjúppabba þar, þar er lagið "Ísland úr Nató og herinn á brott". Ég hélt mikið uppá þetta lag og alla þessa plötu, og einnig plötuna:"Áfram stelpur", eftir kvennafrídaginn 1975, og sú skífa hefur án efa vakið hjá mér löngun til að semja um það sama, með og á móti.
Nú vil ég koma að því sem ég mér finnst mikilvægt að tjá.
HVERS VEGNA ER EKKI VG MEÐ FRIÐARMÁLIN Í FORGRUNNI HJÁ SÉR Á ÞESSUM STRÍÐSTÍMUM, OG SLAGORÐIÐ:"ÍSLAND ÚR NATÓ OG HERINN Á BROTT?"
Er það vegna þess að þau eru enn í þessari stjórn með Sjálfstæðisflokknum?
Nú vil ég rifja upp fortíðina svolítið.
Muna ekki allir eftir Bjartri framtíð og hvernig hún þurrkaðist út af þingi 2017, og við tók þessi ólánsstjórn Katrínar og Bjarna sem snérist bara um eitt, að selja Andskotanum sál sína og þurrka út allan heiðarleika og staðfestu?
Björt framtíð fékk 1.2% í kosningunum í október 2017. Sennilega hafa allir landsmenn dregið rangan lærdóm af þeirri rassskellingu flokksins og stjórnarinnar þáverandi.
Sennilega hafa Katrín og Bjarni fengið þá ranghugmynd inní kollinn í kjölfarið að þau myndu fá vinsældir með því að vera sveigjanleg einsog Framsókn, út yfir gröf og dauða, og meira en Framsókn jafnvel.
Það ættu jú allir að muna það að Björt framtíð sprengdi ríkisstjórnina því Björt Ólafsdóttir formaður vildi taka "prinsippafstöðu", að Bjarni Benediktsson hefði staðið sig svo illa að upplýsa ríkisstjórnina ekki um bréfið sem faðir hans skrifaði og varðaði uppreisn æru dæmds einstaklings.
Það er mögulegt að þjóðin hafi talið þetta of lítið mál til að sprengja ríkisstjórnina út af, sem sé að það varðaði ekki efnahagslega hagsmuni þjóðarinnar.
Katrín og Bjarni hafa þá farið að halda að ef þau myndu halda dauðahaldi í stólana yrðu þau vinsæl. Það reyndist ekki rétt.
Lýðskrumarinn Jón Gnarr sagði í frægu viðtali nýlega:"Höfum tekið á móti of mörgum flóttamönnum".
Miðflokkurinn er orðinn miklu stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Lýðræðisflokkur Arnars Þórs fær vonandi einnig gott fylgi, en það er aldrei að vita. Ekki varð hann forseti, svo eitthvað lætur fylgið á sér standa ennþá, hvað sem síðar verður þegar hann verður búinn að tjá sig sem mest.
Samfylkingin er orðin stærsti flokkur landsins, eftir að þau tóku upp áherzlur Miðflokksins og fleira.
Af þessu má læra þessa einföldu lexíu um stjórnmál nútímans:
A) Fólk kallar eftir hægriöfgaflokkum, áherzlu á það þjóðlega, minna af fjölmenningu.
B) Fólk kallar eftir staðfestu, að standa með hugsjónum sínum jafnvel þegar þær eru óvinsælar, eins og Sigmundur Davíð hefur gert.
C) Fólk kallar eftir gamaldags kratisma og kannski kommúnisma, það er leikurinn sem Samfylkingin hefur leikið - en einnig hafa þau orðið eins og danskir kratar og fengið vinsældir út af því.
Sjálfstæðisflokkurinn hefði mjög gott af því að vera utan ríkisstjórnar í nokkur kjörtímabil og sleikja sárin og leita innávið.
Vinstri grænir munu sennilega óhjákvæmilega fá það hlutskipti.
Í kortunum eru ekki margar stjórnir.
A) Margir flokkar sem mynda hægristjórn, Flokkur fólksins, Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og Miðflokkurinn.
B) Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn, kannski Miðflokkurinn.
C) Mjög margir flokkar sem mynda vinstristjórn. Það yrði hryllingur og mikið púsluspil. Ekki alveg augljós kostur miðað við dreifingu atkvæða þar á marga flokka.
Með því að kjósa strax myndu stjórnarliðar viðurkenna mistök sín undanfarin ár.
Er hægt að búast við að Sjálfstæðsflokkurinn og Vinstri græn hafi meira fylgi næsta vor eða haust? Er það ekki bara eins og hvert annað happdrætti?
![]() |
Guðmundur: Áframhaldandi samstarf þurfi að koma í ljós |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Metoobylgjan hefur það að markmiði að fækka fólki á jörðinni. Upphaflega beindist hún að bleiknefjum en nú er hún farin að beinast meira að öllum jafnt óháð kynþætti, uppruna, útliti, menningu.
Það er svo sem ekkert launungarmál að mikið verk er óunnið fyrir Metooaðgerðasinna þegar kemur að rappmenningunni í Bandaríkjunum sérstaklega. Árásir beindust að aríum upphaflega, en beinast nú einnig að látnu fólki og af öllum kynþáttum.
Kaupsýslumaður sem var mjög umsvifamikill og kominn undir græna torfu fékk yfir sig haug af ákærum um að hafa verið jafnvel enn verri en Harvey Weinstein í lifanda lífi núna fyrir fáeinum mánuðum. Sú frétt kom í RÚV, en fékk ekki athygli nema þennan eina dag, þannig að Metoohakkavélin er orðin hraðvirk, en almenningur hefur lítinn sem engan áhuga á þessum fréttum lengur eða atburðarás allri.
Þessi frétt um indverskættaða kaupsýslumanninn látna sem lenti í hakkavélinni sýnir stefnubreytingu, að Metoohermenn af báðum kynjum eira nú engu, lífs eða liðnu. Konur verða einnig fórnarlömb Metoohermanna og herkvenda áður en langt um líður.
Metoovopnið mun duga til að draga úr frjósemi allra kynþátta, einnig í Afríku þar sem fólksfjölgun er mikil. Hraðinn er mikill á breytingunum, eins og kemur fram í spádómum og kom fram í þeim áður.
Úrelt útrýmingartól eins og styrjaldir fækka þó enn fólki mikið, sérstaklega þegar þær bætast við minnkandi frjósemi, eins og í Úkraínu, Rússlandi og víðar.
Lesendur þessa pistils bið ég að athuga að stuðningur minn við Trump er ekki vís og eiginlega varla eða alls ekki til staðar. Ég hef talað um andstöðu mína gegn wókmenningunni sem Kamala Harris heldur uppi, en Donald Trump er kannski enn verri úr því að hann styður Ísrael blint, en Elítan er jú einna tengdust slíkum völdum og auði.
Gáleysislegt tal Trumps um kjarnorku og beitingu kjarnorku er það atriði sem hefur fengið mig til að verða athuga Donald Trump þó einna helzt og mest.
Vel gæti verið að Trump verði enn verri og hættulegri forseti en Kamala Harris verði hann kosinn. Heimurinn er á Heljarþröm, bókstaflega.
En þrumuguðinn Þór er lifandi og hann er til. Hann er einnig þúsund sinnum gáfaðri, máttugri og fullkomnari en nokkur mannvera, og áætlanir hans ganga upp. Því miður hefur þetta mannkyn ekki staðizt hans væntingar og því fer sem fer.
![]() |
Rapparinn neitar sök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Ingólfur Sigurðsson
Nýjustu færslur
- Sami vandi, þitt er þannig, ljóð frá 23. október 2018.
- Skírnarhátíð, uppskeruhátíð heiðin og sumarfögnuður, það eru ...
- Maður ætti að halda uppá upphaflegu heiðnu hátíðirnar og finn...
- Perlur sem finnast uppteknar frá 2003 eftir mig, um inngöngun...
- Almenningur á að berjast gegn samfélagsmiðlum, með því að eyð...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 15
- Sl. sólarhring: 94
- Sl. viku: 579
- Frá upphafi: 148427
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 445
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar