Vonlausar ríkisstjórnir munu taka við eins og þessi er, ef ekki er tekið mark á því fólki sem gefur beztu ráðin, og vill rétta við stefnuna

Ég verð að taka undir pistil Rúnars Kristjánssonar um að VG sé orðinn auðvaldsflokkur og menntasnobbsflokkur. Vil ég tengja þá hryllilegu ríkisstjórn sem við höfum einnig greininni frá Frjálsu landi, um að vitfirringin í Bandaríkjunum er orðin slík að Antony Blinken telur kjarnorkustyrjöld ekkert verri en loftslagsbreytingar! Það er þó alveg víst að kjarnorkustyrjöld rústar heiminum, þannig að eftir milljónir ára myndi lífið fyrst aftur taka við sér, og þá yrði mannkynið löngu horfið á vit forfeðra sinna og frumstætt líf taka við að nýju, en um loftslagsbreytingar er að minnsta kosti deilt, útkoma þeirra er ekki 100% vís, þannig að ljóst er að Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna er jafn klikkaður og hinn elliæri Joe Biden, og virðist þetta NATÓ lið endanlega gengið af göflunum, að láta slíkt útúr sér.

Að ríkisstjórn Íslands skuli styðja svona brjálæðinga eins og í Bandaríkjunum og NATÓ sýnir að Katrín, Bjarni, og Sigurður Ingi hafa fórnað öllu fyrir völdin.

En aftur að pistli Rúnars. Ég er ekki jafn bjartsýnn og hann að Sósíalistaflokkurinn vinni land og þjóð gagn, nema kannski einu sinni, áður en hann spillist, ef hann kæmist í ríkisstjórn. Þótt Gunnar Smári sé flugmælskur maður og virðist með mikla réttlætiskennd, þá hefur hann verið þekktur fyrir að skipta um skoðun, eitt sinn var hann talinn kapítalisti, og vonarstjarna Fréttablaðsins. Það er eitt að vera flugmælskur og annað að kunna að stjórna af réttvísi og ráðdeild.

Innan Sjálfstæðisflokksins eru hæfileikaríkir einstaklingar eins og í flestum flokkum. Bjarni Benediktsson er ágætur fjármálaráðherra, en ömurlegur formaður flokksins, hann hefur komið ömurlegum konum til valda í sínum flokki og öðrum, og hefur sýnt þar fullkomið dómgreindarleysi.

VG er kannski eini flokkurinn sem virðist fullur af nátttröllum sem hafa dagað uppi, og eru nú að framfylgja 20 - 60 ára draumórum femínista og draumórum Grænfriðunga, sem voru alla tíð úr tengslum við raunveruleikann, enda baráttan gegn hvalveiðum sýndarmennska vinstrimanna frá upphafi og tilfinningamál frekar en náttúruverndarmál.

Þannig held ég að innan Framsóknar, Miðflokksins og jafnvel Pírata og Viðreisnar sé stjórnmálafólk sem gæti staðið sig þokkalega vel. Sérstaklega ætti Flokkur fólksins að fá meira fylgi eins og Íslenzka þjóðfylkingin eða Frelsisflokkurinn, nú þegar búið er að opna landamæri Íslands þannig að við förum að fá sömu vandamál og Svíþjóð, Frakkland og Bandaríkin vegna fjölmenningarinnar.

Ég held að almenningur sé versta vandamál íslenzku þjóðarinnar. Hugsjónaleysið, dugleysið, sinnuleysið, deyfðin, skorturinn á þjóðlegri stefnu og metnaði, þetta er að fara með þjóðina, sérstaklega unga fólki.

Skólakerfið er handónýtt og elur upp alþjóðavædda kapítalista sem selja land og þjóð. Stjórnmálamennirnir eru jafn tækifærissinnaðir, svo hvergi er vonin, eða allt að því hvergi.

Jú, vonin felst í því að steypa Katrínu af stóli, og ónýta hryðjuverk fortíðarinnar, tilraunir til að útrýma tjáningarfrelsinu og þjóðerniskenndinni í landinu, þessu sem hjálpar.

Fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar þarf að vera að ógilda lögin um fóstureyðingar og hafa þau í harðari kantinum eins og þau voru. Einnig þarf að stuðla að því að fólk fari að fjölga sér aftur, fleiri en 2 börn á konu, og menntakerfið þarf að vera með aga eins og áður var, og þannig þarf þjóðlífið að vera einnig, og með metnað, en ekki gapandi af gróðafíkn yfir nýjustu tízkubrellunni sem kemur fram.

Raunverulegur áhugi þarf aftur að vakna á menntun og menningu, ekki þrælamenntun heldur þannig að eitthvað sitji eftir. Taka þarf upp fordæmi Fjölnismanna, ekki sýndarmennsku og sýndarhollnustu við slík stefnumál eins og nú tíðkast hjá þessari ríkisstjórn og öðrum sem voru á undan henni um langt skeið.


mbl.is Óttast klofning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Snarpur pistill Ingólfur,-orðagjálfur og efndir ríkisstjórnarinnar undanfarin ár eru rústir einar gagnvart almenningi, það kristallast m.a. vel í pistli G Ingu Helgadóttir hér á blogginu.

Mér finnst kjarni þessa snarpa pistils þíns, umfram það sem oft hefur komið fram hér hjá okkur í "neðanmálsliðinu" á blogginu vera þessi; -Ég held að almenningur sé versta vandamál íslenzku þjóðarinnar. Hugsjónaleysið, dugleysið, sinnuleysið, deyfðin, skorturinn á þjóðlegri stefnu og metnaði, þetta er að fara með þjóðina, sérstaklega unga fólki.

Skólakerfið er handónýtt og elur upp alþjóðavædda kapítalista sem selja land og þjóð. Stjórnmálamennirnir eru jafn tækifærissinnaðir, svo hvergi er vonin, eða allt að því hvergi.

Þeir eru ekki margir sem skrifa betur um birtingamyndir þessarar samfélagslegu siðblindu en þú.

Takk fyrir pistilinn.

Magnús Sigurðsson, 1.8.2023 kl. 06:16

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þakka þér fyrir góða athugasemd Magnús. Mér þykir leitt að ég svaraði ekki strax, mér finnst það sjálfsögð kurteisi að svara... nema ef maður er alveg kjaftstopp og þá löglega afsakaður. En málið með þennan pistil að ég er orðinn þreyttur á því að vaða í leðjunni, þessum ósóma þeirra sem stjórna, og virðast siðlausir. Það er svo ergjandi að geta ekkert í þessu gert, að lýðræðið sé ekki virkara en það. Það er þessi hárfína lína á milli þess að vera sama um það sem ekki er hægt að líða og að dæma náungann, ég er að reyna að hætta að skipta mér af því sem augljóslega er ekki á mínu færi að gera mikið í, nema benda á, en það er erfitt. Það voru tveir pistlar sem vöktu hjá mér innblástur fyrir þennan pistil, bæði þann sem skrifaður var undir nafni Frjáls lands og svo þann sem Rúnar Kristjánsson skrifaði. Það voru svo yfirgengilegir hlutir sem þar komu fram, að maður varð að bregðast við. Síðan er það sinnuleysi flestra, það stundum hvetur mann til að fjalla um eitthvað sem er látið liggja í láginni eins og einskisvert mál, en skiptir þó greinilega alla máli.

Já, pistill G. Ingu Helgadóttur er líka sterkur og sannur, tek undir það.

Þú hefur nú verið mér fyrirmynd eins og margir aðrir hér á blogginu. Bæði gamlir og nýir pistlar eftir þig sem fáir ef nokkrir hafa getað leikið eftir.

Stundum efast ég um að eitthvað sem ég skrifi standist, en það verður bara svo að vera. Eftir því sem færri taka á stóru málunum finnst manni skorturinn meiri á að fjalla um þau. Það hvetur mann. Jafnvel þótt maður geti haft rangt fyrir sér eins og allir.

Maður telur að Guð fylgist með og dæmi fólk líka eftir því sem það lætur ósagt, eða sé meðvirkt í vitleysunni, eins og það sem er ranglega gert, óvart eða viljandi.

Beztu kveðjur.

Ingólfur Sigurðsson, 2.8.2023 kl. 21:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 30
  • Sl. sólarhring: 56
  • Sl. viku: 685
  • Frá upphafi: 108441

Annað

  • Innlit í dag: 28
  • Innlit sl. viku: 548
  • Gestir í dag: 26
  • IP-tölur í dag: 26

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband