Vígstöðuna yfirgefa: (ljóð frá 5. febrúar 2017):

Ljóðagerð er ágæt iðja. Frændi minn Ingvar Agnarsson kenndi mér að búa til hefðbundin ljóð rétt, og brýndi mig til að læra íslenzku eins vel mögulegt væri. Ég tók þeirri kennslu vel. Í þessu ljóði kemur fram nokkurskonar framtíðarspá, sem hefur rættzt, hugsanlega.

 

Að mér fara aðrar mörur,

eins og framtíð þykkum spjótum skjóti.

Heilög höllin

hrunin beint í sand.

Faðir, móðir, sitja í sorgum,

sundruðum borgum.

Eytt er allt þitt land.

Ennþá stendur salur Drottins, heyrir köllin.

Allt með öðru móti,

aðeins líksins börur.

 

Stórar pöddur styrkja þróun,

stefnan þráðbein, fáar sálir skilja.

Sig þau selja,

sorgir magnast því.

Yfirgefa vígstöð virka,

viknandi, circa.

Missir mátt á ný.

Mundu að iðrast, púkar vilja hetjur kvelja.

Heimurinn viltu hylja.

Heljar stöðug sóun.

 

Er minn kóngur enn í fríi?

Ótal þegnar brugðust, kindin líka.

Virkið vaktar

vonda púka en.

Allur heimur undir lagður,

ótryggur sagður.

Muntu treysta á menn?

Maura fyrir turna byggðir, slóðir raktar...

Kölska valdsins klíka...

kiknar maður nýi?

 

Lifir þú sem lægðir öldur?

Lengi hraustur, féndur rændu mætti.

Enginn andzar,

eða sér þitt starf.

Sníkjudýrin gleypa gróðann,

gera mig hljóðan.

Endursköpum arf.

Ennþá hetjan þar í landi sigurs dansar.

Heillatíminn hætti,

heyrist bjánanöldur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Innsláttarvilla, "enn" í staðinn fyrir "en" á að vera þarna, í þriðja erindi, fjórðu línu, eins og glöggir lesendur gera sér grein fyrir af samhenginu. Hægt er að telja þetta kristinn sálm eða ljóð, en þetta er ekki sízt um afa minn, og það góða starf sem hann lét eftir sig. Hann var mikið fyrir að dansa eins og kemur fram í ljóðinu. Í því kemur þó margt fram sem hefur rættzt á okkar dögum, eins og ég hef minntzt á.

Ingólfur Sigurðsson, 20.2.2022 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 189
  • Sl. viku: 702
  • Frá upphafi: 107733

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 496
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband