Fylgishrun Framsóknarflokksins og Einars Þorsteinssonar í samstarfinu við Dag B. Eggertsson og Samfylkinguna í Reykjavík. Úr 18% í 8%.

Framsóknarflokkurinn hefur tapað mjög miklu fylgi í Reykjavík eftir að Einar Þorsteinson komst að þeirri merkilegu og þversagnakenndu niðurstöðu að bezta leiðin til að breyta einhverju í Reykjavík væri að breyta engu og gerast enn ein "viðreisnarhækjan" fyrir Dag B. Eggertsson, samkvæmt því sem kom fram í Íslandi í dag undir stjórn Snorra Mássonar í gærkvöldi á Stöð 2.

"Tími til kominn að breyta Reykjavík", sagði hann og eftir kosningar spartzlaði saman gamla meirihlutanum með Degi B. Eggertssyni. Eitthvað undarlegt við það.

Leitt þótti mér að hann gerði tvær málvillur, viljandi eða óviljandi. Talaði um "bæði" en ekki "hvort tveggja", þegar "hvort tveggja" passaði betur. Svo talaði hann um að taka"áhættur í svona kulda" eða eitthvað slíkt, en eins og ég lærði þetta er orðið áhætta alltaf í eintölu. Er hann ekki íslenzkufræðingur? Eða er þetta tízkubylgja íslenzkufræðinganna í dag, að gera villur viljandi?

Fylgi Framsóknarflokksins er "alveg hrunið" í Reykjavík í samstarfinu með Degi B. Eggertssyni, eins og Snorri sagði í þættinum, fór úr 18.7% í síðustu kosningum í 8.2% í könnun Maskínu.

Orðalagið "verkefnastjóri framtíðarinnar" var gert að sökudólgi, en væntanlega var það bara grín hjá Snorra.

Það voru margir búnir að spá fylgistapi Framsóknar eftir að Einar ákvað að vinna með Degi en ekki Sjálfstæðisflokknum, Hildi Björnsdóttur. Auðvitað er það málið að þetta var gjörsamlega fyrirsjáanlegt. Kjósendur voru að heimta breytingar sem þeir fengu ekki, Einar í Framsókn gerðist enn einn útlitsstjórnmálamaðurinn en ekki prinsippstjórnmálamaður sem breytir einhverju í raun og veru, en útlitsstjórnmálamaður þykist aðeins gera það.

Hvenær ætla menn að læra af því hvað kjósendur eru að kalla eftir í Reykjavík, ekki meira af Degi B. Eggertssyni og Samfylkingunni heldur einhverju nýju?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Alfreð K

Ekki meiningin að vera smámunasamur, en af því að þú leggur mikið upp úr vönduðu máli, (eins og ég), vil ég bara benda á, að þú notar punkt í stað kommu til að aðgreina tugabrot:

,,fór úr 18.7% í síðustu kosningum í 8.2% í könnun Maskínu''

Punktur er notaður þarna bara í ensku (og hebresku, arabísku og mörgum asíutungumálum), held ég, en í nánast öllum öðrum tungumálum Evrópu (nema í Sviss), þ.m.t. íslenzku, er (eða var a.m.k. fyrir daga Facebook) notuð komma.

Alfreð K, 9.2.2023 kl. 03:44

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Takk fyrir athugasemdina Alfreð. Svo sé ég að þú notar zetu eins og ég. Já, þær reglur er hægt að kenna eins og annað, spurning um metnað, þetta geta börnin alveg lært. Ég lærði zeturegluna af vini mínum þegar ég var kominn yfir tvítugt. Samt er sagt að fullorðið fólk sé tornæmt. Ég spurði kennarann minn í barnaskóla hvernig þessar reglur væru en hann vildi ekki kenna mér þær, og sagði að það myndi bara rugla málskilning okkar í bekknum! 

Ingólfur Sigurðsson, 9.2.2023 kl. 14:32

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Zeta Einars veruður ekki löng!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 9.2.2023 kl. 22:22

4 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Takk fyrir snjalla athugasemd Sigurður, en ég tel að það sé aldrei að vita með Dag og stjórnsýsluna hans. Það var búið að spá því tvisvar að annar tæki við. Kannski hökta þau út að næstu kosningum.

En allavegana, litlar líkur eru á því að Einar Þorsteinsson verði nema út þetta kjörtímabil sem leiðtogi, og að næst verði annar valinn til að leiða flokkinn.

Þannig að margt er rétt við athugasemd þína.

Ingólfur Sigurðsson, 9.2.2023 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingólfur Sigurðsson

Höfundur

Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur Sigurðsson

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 128
  • Sl. sólarhring: 130
  • Sl. viku: 463
  • Frá upphafi: 103381

Annað

  • Innlit í dag: 85
  • Innlit sl. viku: 346
  • Gestir í dag: 77
  • IP-tölur í dag: 77

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband